Fold Fasteignasala 552-1400 kynnir: Hringbraut 75, 101 Reykjavík
Uppgerð 2ja herbergja kjallaraíbúð með sérinngangi.
Íbúðin er 34,5 fm og að auki er sameign allra 9,1 fm.Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, baðherbergi og herbergi.
Eldhús með hvítri innréttingu, Bosch eldavél, Electrolux uppþvottavél og ísskáp. Tækin fylgja með eigninni. Gluggi í eldhúsi.
Stofa og
herbergi með opnanlegum gluggum.
Baðherbergi er með sturtu og handlaug með lítilli innréttingu. Gengið er inná baðherbergið frá sameign.
Parket er á gólfum á allri íbúðinni að undanskildu baðherbergi þar sem er dúkur.
Aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi í gegnum sameign.
Íbúðin er til afhendingar 1. september 2024.
Skráð sem íbúð hjá Þjóðskrá / HMS - en er ósamþykkt hjá byggingaryfirvöldum í Rvk.
Nánari upplýsingar gefur Gústaf Adolf lgf.,
[email protected] / 895-7205.