Torfholt 14, 840 Laugarvatn
110.000.000 Kr.
Einbýli
7 herb.
290 m2
110.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1974
Brunabótamat
118.950.000
Fasteignamat
76.900.000

Torfholt 14, 840 Laugarvatni.
Fold fasteignasala kynnir í einkasölu:: Glæsilega húseign með  aukaíbúð á útsýnisstað á Laugavatni.
Frábær staðsetning, með útsýni yfir Laugarvatn og með mikilli fjallasýn, meðal annars til Heklu.
Skipti koma til greina á íbúð á Höfuðborgarsvæðinu eða á Selfossi.


Efri hæð:
Komið er inn í flísalagða ytri forstofu með fataskáp.
Parketlagt sjónvarpshol.
Eldhús með fallegri nýlegri innréttingu (2016/2017), uppþvottavél, spanhelluborði, bakarofni og örbylgjuofni frá 2022. Tvöfaldur ísskápur fylgir.
Borðstofa og stofa eru parketlagðar. Kamína  í stofu. Frá stofunni er útgengt út á vinkilsvalir í suður og vestur með með frábæru útsýni yfir vatnið og til fjalla, meðal annars Heklu. 
Rúmgott hjónaherbergi, parketlagt og með góðu skápaplássi. Frá því er útgengt á svalirnar.
Tvö rúmgóð herbergi með parketi. Annað herbergið er opið fram á gang í dag, en auðvelt er að loka því aftur.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með baðkari og sturtu, góðri innréttingu með vaski og upphengdu salerni. Baðherbergið var endurnýjað 2016/2017.

Neðri hæð:
Þvottahús með glugga, dúk á gólfi, nýlegri innréttingu og vaski.  Þvottahúsið er með lokaðri hurð inn í aukaíbúð en mögulegt er að opna hana á ný.
Góð geymsla með dúk á gólfi er undir tröppum.
Hitakompa með nýlegum forhitara fyrir neysluvatn.
Innangengt er í bílskúr með geymslurými frá stigaholi  Í bílskúr er 3ja fasa rafmagn og gryfja. Innkeyrsluhurðin er álflekahurð með rafmagnsopnara.
Hellulagt bílaplan með hitalögn undir (eftir að setja forhitara).
Fallega ræktuð og hönnuð lóð með álfasteini.
10 fm garðhús fylgir. 
Góður pallur er við húsið og á honum er heitur pottur.

Aukaíbúð með sérinngangi á jarðhæð:
( Einnig getur verið innangengt frá stigagangi hússins)

Stofa með harðparketi.
Eldhús með borðstofu, Innrétting frá 2005 með uppþvottavél, Gorenje eldavél með bakarofni og  ísskáp.
Tvö svefnherbergi með harðparketi, annað þeirra með skáp. 
Baðherbergi er flísalagt með "walk-in" sturtuklefa, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél. Það var endurgert árið 2009
Húsið er frábærlega staðsett á Laugavatni,: Hús sem hentar fyrir stóra fjölskyldu eða sem tvær aðskildar einingar. Á svæðinu er sundlaug og Fontana spa, veitingastaðir auk veitingastaða í nágreni, svo sem Efstadal. Góð íþróttaaðstaða og skólar frá leikskóla til menntaskóla. Stutt er í níu holu golfvöll og merktar gönguleiðir eru í fjallinu.  Kaupendur geta fengið stóran hluta innbús keyptan skv.  nánara samkomulagi.
Myndir sem eru fyrir aftan teikningar eru af aukaíbúðinni.
Fold fasteignasala 552-1400, Sóltúni 20, 105 Reykjavík.
Viðar 694-1401,  Gústaf Adolf 895-7205, Ævar Dungal  897-6060.
https://fold.is - [email protected]
Við erum á Facebook

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.