Þverásbyggð 30, 311 Borgarnes
24.500.000 Kr.
Sumarhús
3 herb.
56 m2
24.500.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1996
Brunabótamat
22.900.000
Fasteignamat
22.600.000

FOLD FASTEIGNASALA 552-1400 kynnir: Þverásbyggð 30, 311 Borgarbyggð.

Bústaðurinn er SELDUR með hefbundnum fyrirvara.

Góður bústaður í Borgarfirði ásamt gestahúsi/geymslu í landi Stóra Fjalls (nálægt Svignaskarði). 
10 mín akstur frá Borgarnesi. Mikill gróður, skjólgott og fjallasýn. Bústaðurinn er skráður 56,3 fm en búið er að byggja viðauka sem hefur að geyma forstofu og þvottahús (óskráð). Geymsluloft er yfir 1/2 bústaðnum. Gestahúsið á lóðinni er einnig óskráð. Parket og dúkur á gólfum. Kamína. Varmadæla (loft í loft) ásamt hitakút. Afhending við kaupsamning. Eigandi skoðar það að taka hjólhýsi (2ja hásinga) uppí eða húsbíl.

Þegar inn er komið tekur við forstofa og innaf henni er þvottahús ásamt sturtuklefa. Stofa, borðstofa og eldhús saman í opnu rými. AEG-tæki í eldhúsi. Tvö svefnherbergi ásamt salerni. Stór sólpallur umlykur húsið ásamt gróðri.
Húsið stendur á 4620 fm leigulandi og er leigan hagstæð, um 60 þús á ári. Leigusamningur er til 25 ára frá 2013 að telja. 
Fasteignagjöld rúmar 100 þús á ári + 10 þús í sumarhúsafélagið.
Leiðarlýsing: Ekið frá Reykjavík gegnum Borgarnes og áfram í norðurátt þar til komið er að skilti á vinstri hönd á þjóðvegi 1 "Stóra Fjall/Valbjarnarvellir" þar er beygt inn. Síðan er keyrt að skilti "Stóra Fjall" og haldið áfram að gámunum og þá beygt til vinstri og síðan strax til hægri við þann afleggjara og honum fylgt þar til kemur að tveimur rafmagnskössum og þá beygt til vinstri og þeim vegi fylgt til enda.
Nánari upplýsingar gefur Gústaf Adolf lgf., [email protected] / 895-7205.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.